Ađalvalmynd

Leit

Gagnasafn

Á lífi

30. nóvember 2006 klukkan 04:32
Bara að láta vita að ég sé enn á lífi! Brjálað að gera þessa stundina, sem er jú alltaf skemmtilegt.

Andri Stefánsson

Á leiđinni heim

06. júlí 2006 klukkan 19:43
jæja

veit að ég er ekki búinn að skrifa mikið hérna inn en það er nú samt ekkert eins og maður hafi bara legið í leti síðan skólinn kláraðist. Nenni ekki að fara að útlista þetta eitthvað nánar, of löng saga, allavena BA gráðan komin í hús, nóg af vinnu og fullt af sól.

Vildi bara láta vita að ég er á leiðinni heim og verð með sama gamla númerið ef þið viljið ná í mig.
Andri Stefánsson

Hiti

04. maí 2006 klukkan 17:20
Mikið hrikalega er erfitt að reyna að vera inni og læra í sól og 20 stiga hita! Held ég skelli mér bara í stuttar og lesi út á svölum í sólbaði
Andri Stefánsson

Kominn aftur

03. maí 2006 klukkan 13:39
Jæja þá er maður snúinn aftur til bloggheima! Þetta er búin að vera erfið fæðing en tókst þó að lokum. Vil þakka Björgvini fyrir þessa reddingu. Það fór víst allt í hakk á gömlu síðunni þannig að það þurfti að loka henni og síðan var eitthvað smá vesen að tengja lénið við nýja bloggkerfið þeirra en þetta reddaðist allt eins og alltaf.

Ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í þetta sinnið, vildi bara láta vita að maður væri snúinn aftur. Er ennþá að skoða þetta nýja kerfi nánar og læra á það þannig að það ætti eitthvað að gerast á þessari síðu á næstu dögum. Alveg er það náttúrulega týpískt að þetta komist allt í gagnið í miðri prófatörn en maður verður nú bara að reyna að halda smá aga!

Þangað til síðar
Andri Stefánsson

Auglýsing

Fréttir